Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Falleg og stílhrein Tote taska frá Chanel í svörtu caviar leðri með vínrauðu tau innvolsi. Hægt er að renna aðal hólfi að miklu leiti, í hliðum aðal hólfsins er öðru megin renndur vasi og hinu megin tveir misstórir opnir vasar. Málmar töskunnar eru silfur litaðir og með töskunni fylgir CC bag charm sem er fjarlægjanlegt. Pochette fylgir og er á bandi sem er fast við töskuna en krókur er á enda þess og því hægt að taka Pochette af til að nota sér. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Ótrúlega töff Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í xs, minnstu stærðinni, sem er jafn framt vinsælasta stærðin af Balenciaga töskum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og keðjuól sem er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda eftir því hvort hentar betur og krókur á öðrum endanum. Silfur tónaður málmur með svörtum áherslum. Fjarlægjanlegt klink veski og spegill fylgir með ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er úr svörtu, lituðu, lambaskinni frá haust/vetrar línunni 2021. Því er taskan framleidd seint 2021 eða mjög snemma 2022. Kostar ný í dag um 280.000 kr.
Æðisleg Travel Line Tote taska frá Chanel í drapplituðu. Canvas töskunnar er úr Nylon og höldurnar úr leðri. Málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf og þar að innan eru tveir rúmgóðir renndir vasar og krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða seðlaveski.
Dolce & Gabbana taska í bláu gallaefni með rauðbrúnu leðri og silfur málm. Eitt stórt aðallhólf með einu auka hólfi.
Gucci hliðartaska í svörtu nylon efni með web (rauð & græn) línunni að framan og svörtu GG lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt, eitt opið og annað með smellu. Stillanleg ól.
Æðisleg Falabella loðtaska frá Stella McCartney í svörtu vegan loði með silfur málm.
Flott, vintage keepall 50 taska frá Louis Vuitton í monogram canvas, ljósu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf og fylgir nafnspjald með og lítil leðuról til að festa haldföngin saman.
Hin sívinsæla og klassíska Vintage Keepall 55 taska frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvasnum með gylltum málmi. Taskan passar í farangurshólf flugvéla og smellpassar í skottið fyrir ferðalögin. Eitt rennt stórt aðalhólf, framleidd 1991. Með töskunni fylgir nafnspjald og lítil leðuról til að festa haldföngin saman.
Gullfalleg, trending Chloé Paddington taska í metallic lit með silfur málm. Nokkur hólf eru á töskunni, eitt rennt aðalhólf með einu renndu hólfi og einu opnu í innvolsi, tvö auka opin og þrjú sem læsast með beltisskrauti.
Vintage keepall taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas og gylltum málm. Eitt stórt og rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði merkispjald og lítil ól til að festa saman handföngin - framleidd 1991
Svört leður og suede taska frá Prada, eitt rennt aðalhólf er á töskunni með sex auka hólfum, eitt í innvolsi, fjögur opin að utan og eitt rennt.
Æðisleg axlartaska frá Gucci með skemmtilegum rennilásadíteilum að framanverðu (litlir vasar). Taskan er í svörtu Monogram og með silfruðum málmi. Aðalhólfið er rennt en í innvolsi er einn renndur vasi.
Geggjuð Mayfair Pochette gellutaska frá Gucci úr off-white Guccissima leðri með sætri slaufu að framanverðu. Aðalhólfið er rennt en í innvolsi er einn opinn vasi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Hrikalega flott Lady Dior taska frá Christian Dior. Taskan er í dökkdökk grænum lit með bláu og hvítu floral printi og silfur málm. Eitt aðalhólf err á töskunni, sem opnast og lokast með smellu, þar ofan í eru tvö auka hólf. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól og veski með.
Lítil og hentug Burberry taska í svörtu leðri með Nova Check mynstrinu og gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf og tvö opin auka hólf. Stillanleg ól.
Hvíta Triangle taskan frá Prada úr leðri. Taskan er skemmtileg í lögun eins og þríhyrnda Prada lógóið. Aðalhólfið er rennt en á ólinni er einnig minna rennt veski sem hægt er að smella af ef maður vill. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðisleg hekluð LAX taska frá Chanel úr bómull og leðri í kremuðum lit. Málmur er silfraður og að framan er stór niðurhleypt CHANEL merking í leðrinu. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn minni renndur vasi. Að framan og aftan eru opnir vasar sem opnast og lokast með segullokun. Taskan er frá árinu 2005.
Æðisleg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan opnast að framan undir svörtu og gylltu stóru LV lógói, þar undir er segulloki. Innvols er vínrautt og með einu rúmgóðu hólfi ásamt renndum vasa. Þar fyrir framan er opinn auka vasi. Málmar eru gulltóna, fyrir utan lógó að framan. Einnig er opinn flatur vasi aftan á töskunni. Gyllt keðjuól sem er að hluta með svörtu leðri fyrir aukin þægindi. Ólina er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda. Fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki með.
Sturluð Paloma clutch frá Christian Louboutin í svörtu leðri með gylltum málm og rauðu innvolsi. Taskan opnast með segulloka undir leður flipanum, innvols er svart og rautt. Í innvolsi er eitt opið aðalhólf, 10 kortahólf, renndur vasi og tveir mis rúmgóðir flatir vasar. Gull tóna keðjuól fylgir með en er fjarlægjanleg með krókum, ólin er að hluta með svörtu og rauðu leðri fyrir aukin þægindi. Hægt er að nota ólina einfalda eða "krossa" undir leðurflipanum til að stytta hana og nota sem axlartösku. Einnig hægt að taka ólina af til að nota töskuna ólarlausa eða sem "clutch". Upprunalegur rykpoki og verslunarpoki fylgir með.
Gullfalleg Jackie taska frá Gucci í grænu rúskinni, með grænu leður handfangi og öðrum leður áherslum. Taskan er með handsaumuðum útsaumi, kristölum og perlum. Málmar eru silfur tónaðir og er eitt opið aðalhólf og einn renndur vasi að innan.
Klassíska 2way taskan frá Miu Miu í stórri stært og úr hvítu leðri. Málmur er gylltur og taskan skartar málmlógóinu á annarri hliðinni. Aðalhólfið er rennt en í innvolsi er einnig einn renndur vasi. Löng ól sem hægt er að taka af. Hentar undir fartölvu!
Krúttleg og sæt mini taska frá Gucci í drapplituðum lit með endurtekna ''GG'' munstrið og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og eitt auka hólf.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Geggjuð sæt Louis Vuitton Neverfull taska, Taskan er i stærð MM, í brúnum monogram canvas og með dökkbleiku fóðri. Pochette fylgir sem hægt er að krækja í töskuna innan frá. Taskan kostar 225.000 - 270.000 ný hjá Louis Vuitton en heldur verðgildi sínu og jafnvel hækkar í virði ef vel er farið með hana.