Verslaðu merkjavöru á afslætti Versla Núna

Frí sending í póstbox innan Íslands

Allar vörur eru vottaðar Ekta af sérfræðingum

Töskur

Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!

Louis Vuitton Favorite MM taska Louis Vuitton Favorite MM taska
Louis Vuitton Favorite MM taska 205.990 kr

Ótrúlega vinsæl og hentug Favorite taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með segli og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi. Tvær ólar fylgja töskunni, ein fjarlægjanleg leðuról og ein keðjuól. Taskan var framleidd árið 2014.

Christian Dior My Dior Daily Chain taska Christian Dior My Dior Daily Chain taska
Christian Dior My Dior Daily Chain taska 240.000 kr

Æðisleg My Dior Daily taska frá Christian Dior í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur sex kortahólf, eitt rennt hólf og tvö opin. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Louis Vuitton Galleria PM taska Louis Vuitton Galleria PM taska
Louis Vuitton Galleria PM taska 125.990 kr

Ótrúlega falleg Galleria taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gyllltum málm. Eitt opið aðalhólf sem lokast með smelllu, þar ofan í eru tvö auka hólf.

Fendi Zucca Tote taska Fendi Zucca Tote taska
Fendi Zucca Tote taska 105.990 kr

Skemmtileg Tote taska frá Fendi í endurtekna ''FF'' mynstrinu með fjólubláum saum og innvolsi. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.

Gucci Vintage Sherry Line taska Gucci Vintage Sherry Line taska
Gucci Vintage Sherry Line taska 92.990 kr

Falleg, vintage taska frá Gucci í supreme mynstrinu með web (rauð & græn) línunni að framan, dökkbrúnu leðri og gylltum málm. Eitt aðalhólf með auka opnu hólfi.

Gucci Abbey D ring taska Gucci Abbey D ring taska
Gucci Abbey D ring taska 62.000 kr

Sæt Abbey lítil taska frá Gucci í Supreme mynstinu. Eitt rennt aðalhólf og gylltur ''D ring ''krókur að framanverðu.

Goyard Saint Louis Tote PM taska Goyard Saint Louis Tote PM taska
Goyard Saint Louis Tote PM taska 465.000 kr

Ótrúlega vinsæl Saint Louis PM tote taska frá Goyard. Taskan er í gulu Goyardine mynstrinu með ljósu innvolsi og handmáluðu rauðu og hvítu GOYARD hjarta að framan. Eitt opið aðalhólf og lítið auka veski sem er krækt í með bandi sem er hægt að fjarlægja sem er einnig í sama mynstri og með gulltónuðum málmum. Vegna þess að Goyard töskur er ekki hægt að kaupa á netinu heldur alfarið í verslunum þeirra reynast þær mjög eftirsóttar. Þessi taska er fyrsta sinnar tegundar í verslun Attikk. Upprunalegur gulur rykpoki fylgir með.

Chanel Boy Medium Caviar flap taska Chanel Boy Medium Caviar flap taska
Chanel Boy Medium Caviar flap taska 700.000 kr

Falleg Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki og kassi með töskunni. Fullkomin gjöf!

Louis Vuitton Beaumarchais Damier Ebene taska Louis Vuitton Beaumarchais Damier Ebene taska
Louis Vuitton Beaumarchais Damier Ebene taska 210.000 kr

Skemmtileg hliðartaska frá Louis Vuitton í damier ebene canvas með ljósu og svörtu kálfaleðri og gylltum málm. Taskan er hætt í framleiðslu hjá Louis Vuitton og því eftirsóttari en áður. Eitt aðalhólf sem opnast með segli, þar ofan í eru þrjú hólf og eitt auka hólf að aftan. Með töskunni fylgir upprunaleg ól, rykpoki og kassi.

Bottega Veneta Mount Chain Envelope taska Bottega Veneta Mount Chain Envelope taska
Bottega Veneta Mount Chain Envelope taska 180.000 kr

Æðislega vönduð Mount Chain Envelope taska í litnum Almond Gold. Taskan er úr lambaskinni og skartar gylltum málmi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki og upplýsingakort.

Bottega Veneta Chain Pouch taska Bottega Veneta Chain Pouch taska
Bottega Veneta Chain Pouch taska 200.000 kr

Æðisleg og eftirstótt Chain Pouch taska frá Bottega Veneta úr fallegu brúnu kálfaleðri. Taskan skartar gylltri málmkeðju sem ól, sem hægt er að krækja af/á. Taskan kostar ný $4.100 eða um 500.000 isk á núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki fylgir.

Louis Vuitton Pochette Métis taska Louis Vuitton Pochette Métis taska
Louis Vuitton Pochette Métis taska 300.000 kr

Falleg og eftirsótt Pochette Métis taska frá Louis Vuitton í klassíska brúna monogram canvasinu. Eitt aðalhólf er á töskunni sem skiptist í þrennt, og eitt rennt auka hólf að aftan. Allur málmur er gylltur. Með töskunni fylgir stillanleg ól og upprunalegur rykpoki og verslunarpoki. Taskan kostar ný hjá Louis Vuitton um 340.000 kr.

Louis Vuitton Bosphore 45 ferðataska Louis Vuitton Bosphore 45 ferðataska
Louis Vuitton Bosphore 45 ferðataska 179.990 kr

Æðisleg Bosphore ferðataska frá Louis Vuitton í stærðinni 45. Sígildur monogram canvas, Vachetta leður áherslur og gulltónaður málmur. Eitt rennt aðalhólf, þar fyrir innan er einn renndur vasi og flipar með frönskum rennilásum til að auka skipulagið á ferðalaginu. Einnig tveir auka opnir vasar að utan og tveir renndir. Hefðbundið lengjanlegt ferðatösku haldfang, hjól undir og lítið haldfang að ofan. Lás, lykill og rykpoki fylgir með.

Gucci Soho Disco taska Gucci Soho Disco taska
Gucci Soho Disco taska 129.990 kr

Sígild Soho Disco taska frá Gucci í svörtum lit með gylltum málmi. Á töskunni er Ísaumað GG lógó að framanverðu og á rennilás er leðurkögur. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur einn innri flatan vasa.

Fendi Medium Baguette hliðartaska Fendi Medium Baguette hliðartaska
Fendi Medium Baguette hliðartaska 325.000 kr

Ótrúlega falleg baguette hliðartaska frá Fendi. Taskan er í eftirsótta FF Jacquard mynstrinu í Tobacco lit og með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni sem opnast með smellu, þar ofan í er eitt rennt auka hólf. Með töskunni fylgja tvær ólar, ein löng og ein stutt, báðar í FF Jacquard mynstrinu. Einnig fylgir upprunalegur kassi og rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá Fendi og kostar þar 445.470 ISK

Gucci Horsebit Hobo taska Gucci Horsebit Hobo taska
Gucci Horsebit Hobo taska 132.990 kr

Ótrúlega falleg hobo taska frá Gucci í supreme mynstrinu, með dökkbrúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi. Á haldfanginu er eftirsótti Horsebit málmurinn.

Fendi Zucca Large axlartaska Fendi Zucca Large axlartaska
Fendi Zucca Large axlartaska 129.990 kr

Flott og hentug Fendi taska í endurtekna FF Zucca mynstrinu með gylltu FF lógó að framan. Taskan opnast með flipa og hefur eitt aðalhólf með einu renndu hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Louis Vuitton Speedy 30 taska Louis Vuitton Speedy 30 taska
Louis Vuitton Speedy 30 taska 92.000 kr

Speedy 30 taska frá Louis Vuitton í monogram canvsa með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Lykill og lás fylgir töskunni, framleidd í Frakklandi í Apríl 2006.

Goyard Alpin MM bakpoki Goyard Alpin MM bakpoki
Goyard Alpin MM bakpoki 440.000 kr

Ótrúlega vinsæll Alpin bakpoki frá Goyard í stærðinni MM. Taskan er gerð úr eftirsótta chevron munstaðra Goyardine canvasnum með svörtum leður áherslum. Eitt aðalhólf sem er hægt að draga saman með bandi og ýmis önnur nytsamleg hólf. Axlarólarnar á bakpokanum er hægt að nota á mismunandi vegu og fylgir leður festing með. Framleidd 2018.

Miu Miu Vintage taska Miu Miu Vintage taska
Miu Miu Vintage taska 30.000 kr

Sæt Miu Miu axlartaska í dökku leðri með glæsilegu prenti og silfur málm. Eitt opið aðalhólf með tveimur auka renndum hólfum. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Louis Vuitton Lockme Day taska Louis Vuitton Lockme Day taska
Louis Vuitton Lockme Day taska 180.000 kr

Glæsileg Lockme Day taska frá Louis Vuitton í svörtu kálfaleðri með silfur málm. Eitt opið aðalhólf sem lokast með smellu, þar ofan í eru fjögur auka hólf, eitt rennt, tvö opin og eitt með snúningsfestingu. Með töskunni fylgir upprunalegurr rykpoki og fjarlæganleg leðuról. Framleidd árið 2019.

Gucci Ophidia Medium Tote taska Gucci Ophidia Medium Tote taska
Gucci Ophidia Medium Tote taska 160.000 kr

Æðisleg og hentug tote taska frá Gucci í supreme mynstrinu með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf sem lokast með segli, tvær höldur eru á töskunni, ein lengri og önnur styttri. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Louis Vuitton Speedy 30 taska Louis Vuitton Speedy 30 taska
Louis Vuitton Speedy 30 taska 110.000 kr

Glæsileg og vinsæl Speedy 30 frá Louis Vuitton í damier ebene canvas og gylltum málm. Eitt rennt stórt aðalhólf með einu auka hólfi. Framleidd árið 2010 og fylgir bæði lykill & lás með.

Louis Vuitton Bosphere Pochette taska Louis Vuitton Bosphere Pochette taska
Louis Vuitton Bosphere Pochette taska 80.000 kr

Skemmtileg Bosphere pochette taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gyllltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi að framan.

Verslun
Leita
Aðgangur
0
Óskalisti
0
Karfa
Innskráning
Filter