Allar tegundir af skóm í hinum ýmsu stærðum frá öllum helstu lúxusmerkjunum. Kíktu á gríðarlegt úrval Attikk af skóm frá merkjum eins og Gucci, Louis Vuitton, Prada og fleirum.
Ótrúlega fallegir hælaskór frá Gucci í glæsilegum grænum lit með fylltum botn og ''GG'' mynstrinu að framan. Með skónum fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Geggjaðir og eftirsóttir Rhyton leður strigaskór frá Gucci í ivory lit. Skórnir eru með þykkan botn og er "vintage" Gucci lógó á hliðunum, sem er innblásið frá árinu 1980. Upprunalegur kassi og rykpokar fylgja með.
Gæðalegir hælar frá Hermés úr fölgrænu rúskinni og kampavínslituðu satíni. Hælarnir eru opnir í tær.
Gucci beige og bláir GG supreme canvas low top strigaskór. Aftan á hælum er grænn litur sem skartar GG lógó í gylltum lit. Þykkir hvítir sólar með engraved GUCCI merkinu aftan á skónum. Með skónum fylgja 2 rykpokar og ónotaðar auka reimar.
Sætir sandalar frá Gucci í fallegum ljós bleikum lit með perlu ''GG'' mynstri á hliðunum.
Nettir og stílhreinir hvítir strigaskór frá Celine úr kálfaleðri með dökkbláum línum á hliðunum og látlausu lógó á tungunni. Skórnir kosta nýjir um $850 hjá Celine, þ.e. um 115.000 isk á núverandi kortagengi. Upprunlaegir rykpokar fylgja.
Gucci Ace strigaskórnir eru úr hvítu leðri og þekkjast samstundis á einkennandi grænum og rauðum röndum. Smáatriðin við hælana eru í sitthvorum litnum og býflugurnar á hliðunum eru gylltar. Skórnir eru úr hvítu leðri og skarta smáum "bee" (býflugum) prentum á hliðunum, sem gefa þeim mjög einkennandi útlit. Skórnir eru enn til sölu hjá Gucci og kosta nýjir $890 án vsk/VAT sem er ca. 122.000 isk