Hinir ýmsu lúxus fylgihlutir finnast í skápunum hjá Attikk. Kíktu á úrvalið af fylgihlutum sem við erum með sem stendur.
Auka ól frá Louis Vuitton úr svörtu Nylon efni, með Vachetta áherslum við endana og Monogram klinkbuddu sem hægt er að krækja af/á ólina. Sambærileg ól kostar ný 127.000 kr.
Ljósgrár og ljósblár Reversible Monogram ullartrefill frá Gucci. Kemur með kassa.
Tímalaust Marmont belti frá Gucci í smækkaðri útgáfu (Skinny), svart leður með silfurlitaðri sylgju. Beltið er enn í framleiðslu og kostar nýtt í búð 440 usd, eða u.þ.b. 55.000 kr. á núverandi kortagengi. Beltið kemur með rykpoka.
Geggjuð GG Monogram derhúfa frá Gucci sem skartar flottu Web línunum á hliðum. Stillanleg með frönskum rennilás.
Glæsileg sólgleraugu frá Jimmy Choo í drapplituðum lit með demanta skrauti á hliðunum. Hulstur fylgir með.
Klikkuð sólgleraugu frá Bvlgari í svörtum lit með silfur kristölum á hliðunum. Hulstur fylgir með.
Flott oversized sólgleraugu frá Gucci í svörtum lit með bæði gylltu GG lógó á hliðunum og eftirsóttu býfluguna á einni hlið. Hulstur fylgir með.
Æðisleg sólgleraugu frá Gucci í brúnum lit með gylltu Horsebit skrauti á hliðunum. Hulstur fylgir með.
Flott og praktíst 30mm belti frá Gucci sem hægt er að snúa beggja vegna. Önnur hliðin er úr svörtu leðri sem er klassískt og stílhreint og á hinni hliðinni er vinsæla GG Supreme monogram mynstrið. Sylgjan er gyllt í burstuðum stíl. Beltið kostar nýtt í Gucci 450 evrur eða um 66.000 kr á núverandi kortagengi. Upprunlegur rykpoki fylgir og fallegur rauður kassi.
Fallegt kassalagað Quadro 6200L kvenmannsúr frá Fendi úr ryðfríu stáli og keramík. Quartz úr sem kemur í öskju/boxi og hentar vel sem gjöf.
Gullfallegt Quartz úr frá Christian Dior með svörtu dial og gullhúðaðri ól. Kemur í fallegri öskju og er tilvalin gjöf! Aukahlekkir fylgja.
Flott sólgleraugu frá Fendi með endurtekna ''FF'' mynstrinu á glerinu og gylltri umgjörð. Upprunalegt hulstur fylgir með.
Geggjað reversible Initales belti frá Louis Vuitton í flottu bláu Monogram mynstri á annarri hliðinni og Cobalt bláum lit á hinni.
Hrikalega fallegt D'Amour hálsmen frá Cartier í 18K gulu gulli með fallegum, stílhreinum demanti. D’Amour hálsmenið frá Cartier er sönn táknmynd ástar og fágunar.
Flott úr frá Gucci í svörtum lit með gylltri sylgju, skreytt með býflugum og stjörnum. /38mm, swiss made.
Klassísk töskuól frá Louis Vuitton í Monogram mynstri einu meginn en svörtu leðri á hinni hliðinni, gylltur málmur er á ólinni. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Stílhrein og töff ferköntuð sólgleraugu frá Celine. Umgjörð og gler svört með þremur silfurlituðum punktum á hvorum arminum ásamt "Celine" áletrun í gylltum tón. Upprunalegur glerklútur með Celine merkinu á og veglegt leður slíður sem hulstur.
Töff sólgleraugu frá Balenciaga í svörtum lit með gylltu ''BB'' lógó á hliðunum. Upprunalegt hulstur fylgir með.
Glæsileg sólgleraugu frá Bottega Veneta í svörtum lit með gylltu mynstri á hliðunum. Upprunalegur kassi og klútur fylgir með.
Ótrúlega falleg slæða frá Cartier í 100% silki glæsilegum gulum lit með skemmtilegu mynstri í bláum, grænum, og silfur lit.
Acne Studios Frame sólgleraugun með „shield“ linsu sem nær yfir allan framhlutann. Rammarnir eru í svörtum tónum með sléttum málmskreytingum og einstöku hjarta-charm sem hangir á hægri arminum. Með fylgir svartur Acne Studios rykpoki. Sólgleraugun er enn í sölu hjá Acne Studios og kosta ný ca. 75.000 isk
Tom Ford Fausto TF711 sólgleraugu í svartri umgjörð með áberandi „T“ málmi á örmunum. Með gleraugunum fylgir upprunalegt svart Tom Ford hulstur og ónotaður klútur
Skemmtileg hárspenna frá Balmain í ljósbleikum lit (pastel pink) með 18K gull húðuðum pinna og lógó. Með spennunni fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Glæsileg næla frá Dolce & Gabbana í bleikum og bláum lit með allskonar skrauti.