Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Stórglæsileg Crystal Stud Mask sólgleraugu frá Gucci úr Hollywood Forever Collection. Svört umgjörð með glærum steinum í endurteknu "Gucci" fyrir ofan og neðan glerin ásamt röð af steinum fyrir ofan og á hliðum framhluta umgjarðarinnar. Gylltir málmar, mjóar hliðar og "GG" interlocking lógó á endunum. Upprunalegur Hollywood Forever Collection (Gucci) hulstur fylgir með og ónotað gleraugnaklútur frá Gucci.
Vegleg Ipanema GM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Einn opinn vasi að framanverðu. Aðalhólf er rennt og hefur að geyma tvo minni opna vasa að innanverðu.
Espadrillur frá Gucci með þykkum botni, gylltu leðri og skreyttir stórri slaufu að framanverðu í Sylvie Web litunum.
Sætir sandalar frá Gucci í fallegum ljós bleikum lit með perlu ''GG'' mynstri á hliðunum.
Falleg sólgleraugu frá Gucci í svörtum lit með gylltu ''GG'' lógó á hliðunum. Upprunalegt box fylgir með.