Stærsta úrval landsins af vottuðum Louis Vuitton vörum. Attikk fær til sín í sölu mikið að Louis Vuitton vörum í hverri viku. Þetta franska tískuhús var stofnað árið 1854 af Louis Vuitton og er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Þó nokkuð er af eftirlíkingum af Louis Vuitton í umferð hérna heima og því mikilvægt að kaupa eingöngu vottaðar vörur þegar það er keypt notað.
Stór glæsileg Petite Malle taska frá Louis Vuitton sem var framleidd í október 2017. Taskan er í svörtu Epi og kálfa leðri, svörtum málmum á hornum ásamt gull tóna málm áherslum víða. Taskan opnast að framan og losnar þá leður flipinn sem leggst yfir töskuna og opnast hún þá að ofan. Taskan sjálf lokast með segli og er ljós að innan með einum flötum vasa. Svört þunn crossbody ól, stillanleg, fylgir með og er hægt að hafa töskuna með eða án hennar. Einnig fylgir upprunalegur rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá LV og kostar hún 5,200 evrur sem er um 748.000 isk.
Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.
Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2011 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Kostar ný $2,170.00, eða 265,260isk á núverandi gengi.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.
Ótrúlega falleg, unique ferðataska frá Louis Vuitton í Monogram canvas frá árinu 2017. Eitt stórt, rennt aðalhólf er á töskunni og tvö auka rennd hólf, eitt í innvolsi og annað að framan. Einnig fylgir henni sérstakt hólf sem geymir útdraganlegt handfang, sem gerir það mögulegt að breyta töskunni í þægilega ferðatösku. Allur málmur er gylltur og eru tvö dekk á einni hliðinni. Sjúklega hentug og stílleg taska í ferðalögin!
Louis Vuitton Damier Ebene Pariolo PM taska. Taskan lokast með segulloka og hefur eitt aðalhólf og tvo opin hólf inn í. Að innan er taskan gerð úr velúr eða rúskinni sem er appelsínugult á litinn. Taskan er framleidd árið 2004. Rykpoki fylgir.
Lítil Louis Vuitton Recital taska í brúnu monogram mynstri með stuttri ól og rauðu rúskinni að innan. Hætt í framleiðslu.