Stærsta úrval landsins af vottuðum Louis Vuitton vörum. Attikk fær til sín í sölu mikið að Louis Vuitton vörum í hverri viku. Þetta franska tískuhús var stofnað árið 1854 af Louis Vuitton og er mjög vinsælt meðal Íslendinga. Þó nokkuð er af eftirlíkingum af Louis Vuitton í umferð hérna heima og því mikilvægt að kaupa eingöngu vottaðar vörur þegar það er keypt notað.
Falleg New Wave Multi Pochette taska frá Louis Vuiitton í svörtu kálfaleðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi ofan í. Tvær ólar fylgja með, ein lítil keðjuól og önnur lengri tauól með fjarlægjanlegri buddu. Upprunalegur rykpoki fylgir með, kassi og verslunarpoki.
Virkilega falleg Pochette Twin GM taska frá Louis Vuitton í klassískum brúnum monogram canvas. Eitt aðalhólf sem lokast með smellu, í því er opinn vasi sem rúmar flesta snjallsíma.
Glæsileg Dauphine taska frá Louis Vuitton í svörti Epi leðri með gylltum málm. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf sem skiptist í þrennt, tvö opin og eitt rennt hólf. Með töskunni fylgir bæði fjarlægjanleg keðjuól og leðuról, m.a. upprunalegur rykpoki.
Hentug snyrtitaska frá Louis Vuitton í monogram canvas. Eitt rennt aðalhólf með einu auka hólfi.
Glæsileg Hudson taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka opnum hólfum. Þrjú auka hólf eru að framan, tvö sem opnast með smellu og eitt rennt. Framleidd árið 2006.
Ótrúlega vinsæl og hentug Favorite taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með segli og hefur eitt aðalhólf með einu auka hólfi. Tvær ólar fylgja töskunni, ein fjarlægjanleg leðuról og ein keðjuól. Taskan var framleidd árið 2014.
Skemmtileg hliðartaska frá Louis Vuitton í damier ebene canvas með ljósu og svörtu kálfaleðri og gylltum málm. Taskan er hætt í framleiðslu hjá Louis Vuitton og því eftirsóttari en áður. Eitt aðalhólf sem opnast með segli, þar ofan í eru þrjú hólf og eitt auka hólf að aftan. Með töskunni fylgir upprunaleg ól, rykpoki og kassi.
Speedy 30 taska frá Louis Vuitton í monogram canvsa með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Lykill og lás fylgir töskunni, framleidd í Frakklandi í Apríl 2006.
Glæsileg Lockme Day taska frá Louis Vuitton í svörtu kálfaleðri með silfur málm. Eitt opið aðalhólf sem lokast með smellu, þar ofan í eru fjögur auka hólf, eitt rennt, tvö opin og eitt með snúningsfestingu. Með töskunni fylgir upprunalegurr rykpoki og fjarlæganleg leðuról. Framleidd árið 2019.
Glæsileg Musette Tango axlartaska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Taskan opnast með flipa og hefur eitt rúmgott aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Framleidd árið 2002.
Glæsileg og vinsæl Speedy 30 frá Louis Vuitton í damier ebene canvas og gylltum málm. Eitt rennt stórt aðalhólf með einu auka hólfi. Framleidd árið 2010 og fylgir bæði lykill & lás með.
Klassísk Alma BB í rauðu monogram mynstri úr glansandi Vernis leðri. Löng fjarlægjanleg ól fylgir ásamt lás og lyklum. Aðalhólf er rennt en í innvolsi er einn opinn kortavasi. Framleidd 2013.
Flott vintage Triana taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Rúmgóðir vasar á hvorri hlið en aðalhólf er rennt og hefur að geyma einn renndan vasa í innvolsi.
Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2014 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Upprunalegt Pochette fylgir! Taskan kostar ný í kringum 240.000-270.000 ný
Vinsæl mittistaska frá Louis Vuitton sem var kynnt til leiks árið 2018 en tekin úr framleiðslu í Apríl 2022 og því einungis fáanleg á endursölu markaðinum. Taskan er í Monogram canvas, með gulltónuðum málmum og Vachetta leður áherslum. Eitt rennt aðalhólf sem er mjög rúmgott og annað rennt hólf aftan á töskunni. Stillanleg ól. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki, kassi og verslunarpoki.
Sívinsæl Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í monogram canvas, með ljósu Vachetta leðri, af stærðinni 55. Með töskunni fylgir leðuról, lítið belti til að festa saman höldurnar og upprunalegur rykpoki. Þessi stærð er fulkomin fyrir langa helgi út úr bænum.
Klassískt Zippy veski frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur kortahólfum, einu opnu hólfi og öðru renndu. Framleitt árið 2003.
Skemmtileg Chantilly PM taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi.
Glæsileg Montorgueil taska fá Louis Vuitton í stærð GM. Taskan er í klassíska monogram canvas með ljósu vachetta leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi. Framleidd árið 2007.
Lás og lyklar frá Louis Vuitton í sérstakri ferðaútgáfu og í samstarfi við TSA, Transportation Security Administration - sem er hliðstætt íslensku Tollgæslunni. Kemur í upprunalegum rykpoka.
Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.
Vintage keepall taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas og gylltum málm. Eitt stórt og rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði merkispjald og lítil ól til að festa saman handföngin - framleidd 1991
Æðislegur Louis Vuitton Bomber jakki í monogram denim mynstri með leður örmum.