Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Svört Gucci Soho Tote taska með silfruðum áherslum. Taskan er með eitt rúmgott opið aðalhólf sem inniheldur tvö flata vasa og einn renndan vasa. Hægt er að loka töskunni eða þrengja opið með krók að innan sem krækist í hanka. Taskan er úr grained leðri og skartar GG merkinu framan á.
Vinsæla Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu með rauðu innvolsi. Eitt stórt aðalhólf með einum rendum vasa. Hægt er að loka aðalhólfinu með krækju. Taskan er upphaflega hönnuð til að vera reversible, þ.e. hægt er að snúa henni á röngunni. Taskan kostar ný €1,550.00 hjá Louis Vuitton, eða um 222.688 isk á núverandi kortagengi. Um er að ræða vinsælustu töskuna frá Louis Vuitton í endursölu og fylgir pochette taska með. Framleidd á Spáni 2017.
Svört Gucci Marmont crossbody camera taska úr Matelassé leðri. Taskan lokast með rennilás, í aðalhólfinu er einn opinn vasi. Allur málmur er brass gylltur og upprunalegur rykpoki fylgir. Taskan kostar ný um 240.000 kr.
Falleg og nett Favorite hliðartaska frá Louis Vuitton í brúnum monogram canvas. Leður crossbody ól sem hægt er að fjarlægja, í aðalhólfinu er lítill opinn vasi.
Krúttleg og sæt mini taska frá Gucci í drapplituðum lit með endurtekna ''GG'' munstrið og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og eitt auka hólf.
Mjög eftirsótt og klassísk Soho taska frá Gucci í svörtu leðri með svörtu kögri á rennilás og gylltum áherslum. Upphleypt, útsaumað, GG lógó að framanverðu.
Æðisleg, lítil tote taska frá Prada í svörtu nylon efni og leðurhöldum. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt í innvolsi og eitt opið að framan.
Hentug og flott tote taska frá Prada í svörtu nylon efni, með silfur málm og leður höldum.
Æðisleg Chanel tote taska í svörtu lambaleðri með 24K gullhúðuðum málm. Eitt rennt aðalhólf og fjögur auka hólf, tvö rennd í innvolsi, eitt opið að aftan og annað að framan sem lokast með klassíska ''CC'' turn lock. Taskan er frá ca 1994 - 1996.
Æðislega bleik Medium Boy Flap taska frá Chanel úr endingargóða og klassíska Caviar leðrinu í bleikum lit. Aðalhólf lokast með klemmu en í innvolsi er einn opinn vasi sem hentar vel undir kort. Hægt er að hafa ólina á töskunni einfalda (langa) eða tvöfalda yfir öxl. Málmurinn er burstaður gylltur/kopar og fylgir upprunalegur rykpoki með töskunni. Sanngildiskortið vantar. Taskan var framleidd árið 2018.
Taskan er úr fallegu svörtu lambaskinni og skartar gylltum málmi. Aðalhólfið er rennt og hefur að geyma tvo minni vasa en annar þeirra er renndur og hinn opinn. Upprunalegur rykpoki og sanngildiskort fylgir. Taskan er framleidd á tímabilinu 1994-1996.
Geggjuð sæt Louis Vuitton Neverfull taska, Taskan er i stærð MM, í brúnum monogram canvas og með dökkbleiku fóðri. Pochette fylgir sem hægt er að krækja í töskuna innan frá. Taskan kostar 225.000 - 270.000 ný hjá Louis Vuitton en heldur verðgildi sínu og jafnvel hækkar í virði ef vel er farið með hana.
Stór glæsileg Petite Malle taska frá Louis Vuitton sem var framleidd í október 2017. Taskan er í svörtu Epi og kálfa leðri, svörtum málmum á hornum ásamt gull tóna málm áherslum víða. Taskan opnast að framan og losnar þá leður flipinn sem leggst yfir töskuna og opnast hún þá að ofan. Taskan sjálf lokast með segli og er ljós að innan með einum flötum vasa. Svört þunn crossbody ól, stillanleg, fylgir með og er hægt að hafa töskuna með eða án hennar. Einnig fylgir upprunalegur rykpoki með. Taskan er enn til sölu hjá LV og kostar hún 5,200 evrur sem er um 748.000 isk.
Ótrúlega sæt hobo taska frá Fendi í metallic gráu leðri með silfur málm og glæsilegum fléttuðum höldum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með tveimur auka hólfum ofan í.
Æðisleg axlartaska frá Gucci í GG Supreme canvasnum með Web línu (rauð og græn) lóðrétt niður á framhlið töskunnar. Brún áföst leður ól ásamt sama leðri á köntum. Axlar ólina er hægt að stilla örlítið en það eru þrjú göt svo hægt er að stilla hana örlítið. Megnið af málminum er gylltur en rennilás er brúnn. Eitt rennt rúmgott aðalhólf ásamt flötum renndum vasa að innanverðu. Innvols er ljóst úr mjúku efni.
Prada Satchel taska úr gráu efni og svörtu leðri með gúmmíbotni. Aðalhólfið er rennt en tveir stærri vasar og einn renndur vasi er í innvolsi. Lás og lyklar fylgja.
Eftirsótt og tímalaus Croissant taska frá Louis Vuitton í klassíska Monogram mynstrinu. Aðalhólf er rennt en í rauða innvolsinu er að finna tvo minni vasa. Framleidd í Frakklandi í apríl 2003.
Æðisleg taska frá Saint Laurent í svörtu quilted leðri með gylltum málm í stærð medium. Taskan opnast með smellu og hefur eitt aðalhólf sem skiptist í tvennt, í einu hólfinu er auka rennt hólf. Með töskunni fylgir stutt, fjarlægjanleg leðuról með - hægt að nota töskuna með eða án ólar. Einnig fylgir upprunalegur kassi og rykpoki.
Hentug Messenger hliðartaska frá Gucci í svörtu GG Supreme mynstri með svartar leður áherslur og silfur málm. Web (blá og rauð) stillanleg ól er á töskunni og eitt rúmgott aðalhólf, þar fyrir innan er lítill flatur vasi og rúmgóður renndur vasi. Framan á töskunni er einnig renndur vasi.
Glæný og ónotuð GG Supreme Ophidia mittistaska frá Gucci með hvítu leðri og burstuðum gulllituðum málmi. Eitt stórt aðalhólf með segullokun. Uppranlegur rykpoki og kassi fylgja.
Luco Tote taska frá Louis Vuitton í klassíska monogram mynstrinu. Í aðalhólfinu er einn stór renndur vasi og annar opinn. Tveir minni opnir vasar sem flestir snjallsímar myndu passa í og gamaldags símahólf. Rykpoki fylgir.
Ótrúlega flottur Michael bakpoki frá Louis Vuitton í Damier Graphite Noir canvas og silfur málm. Bakpokinn skiptist í þrjú hólf, eitt rennt aðalhólf og tvö auka rennd hólf að framan. Einnig er tölvuhólf í innvolsi og auka opin hólf. Taskan var framleidd árið 2014.
Falleg tote taska frá Louis Vuitton í glæsilegu grænu Epi leðri með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt rennt og eitt opið, einnig er krókur í innvolsi. Taskan var framleiddí nóvember 1995 í Frakklandi.
Stór og hentug skjalataska/ferðataska frá Burberry. Eitt rennt aðalhólf með þremur hólfum, ól, lás og lykill fylgir með.