Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Ótrúlega falleg tote taska frá Gucci í brúnu endurtekna ''GG'' mynstrinu í velvet efni og með web (rauð & græn) línu og tígrisdýr að framan. Eitt opið aðlhólf sem lokast með smellu, Með töskunni fylgir veski með í sama mynstri og upprunalegur rykpoki.
Svört leður TB Burberry mittis taska úr lambaskinni með gylltum áherslum. Taskan opnast með flipa og lokast með segulloka og smellu. Taskan hefur eitt aðalhólf sem inniheldur tvenna flata vasa einn minni fyrir kort og annað aðeins stærri. Á leðrinu er útsaumað TB út um allt eins konar vatterað í leðrið og framan á er gyllt TB málmur.
Flott Unisex Cube mittistaska frá Burberry í dökkbrúnu Check mynstri. Aðalhólf er rennt með einum opnum vasa en að aftan er einnig rennur smáhlutavasi. Ól er stillanleg og með fylgir kassi og rykpoki. Tilvalin gjöf.
Noé Bucket taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf og stillanleg ól.
Klikkað falleg Capucines taska frá Louis Vuitton. Taskan er með opnu aðalhólfi þar sem Python flipi leggst yfir að hluta og er hægt að smeygja inn fyrir leður rönd að innan verðu til að halda í stað. Á enda flipans er fallega LV blómið í gylltum málmi. Undir flipanum er rúmgott aðalhólf sem er tvískipt og í innra hólfinu er flatur vasi. Python haldfang og gylltir málmar. Breið svört leðuról sem er hægt að fjarlægja, upprunalegur rykpoki og upprunalegur kassi fylgir með. Framleidd í lok febrúar 2020 í Frakklandi.
Vintage taska frá Gucci í Supreme mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að framan og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf sem skiptist í þrjú hólt, í einu hólfinu er auka rennt hólf.
Glæsileg Boy taska frá Chanel í svörtu slitsterku caviar leðri með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem opnast með flipa, þar ofan í er eitt auka hólf. Taskan er í stærð Medium og var framleidd árið 2018. Upprunalegur rykpoki með.
Skemmtileg og falleg bucket taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum málm og bambus haldfangi. Með töskunni fylgir gyllt, fjarlægjanleg keðjuól og opnast taskan með smellu.
Hentug og vinsæl Keepall Bandouliere taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Með töskunni fylgir stillanleg ól, nafnspjald í leður hulstri og lítið belti til að festa saman höldurnar. Eitt rennt rúmgott aðalhólf, taskan var framleidd árið 1995.
Vintage Gucci GG Supreme hliðartaska með svartri leður umgjörð og Sherry Line (blá og rauð) niður miðjuna. Opnast með flap sem leggst yfir töskuna og lokast með smellu. Eitt opið aðalhólf og renndur vasi þar fyrir innan. ATH ástand.
Glæsileg vintage hliðartaska frá Burberry´s með Nova Check canvas og brúnu leðri. Taskan opnast að framan með stórum flipa, og málmfestingu þar undir. Innan í töskunni er rúmgott aðalhólf sem er þrískipt, miðjuhólfið er rennt. ATH ástand.
Gucci Ophidia GG Supreme canvas, Web (blá og rauð) lína lárétt niður miðja töskuna. Eitt rennt aðalhólf sem opnast að ofan verðu, þar fyrir innan er eitt rennt auka hólf. Rennt hólf framan á töskunni.
Tryllt Louis Vuitton Marignan taska í monogram canvas með svörtu leðri og gylltum málm. Fjarlægjanleg og stillanleg crossbody ól. Opnast með segli undir lása skrautinu að framan, eitt stórt opið hólf sem hefur að geyma þrjú þunn hólf í hliðunum, eitt nokkuð stórt og annað í sömustærð sem er tvískipt. Framan á töskunni, en þó undir seglinum er annað opið hólf. Upprunalegur rykpoki fylgir með. Framleidd í Febrúar árið 2019 í Frakklandi.
Flott, vintage taska frá Christian Dior í rauðum og drapplituðum lit með gylltum málm. Eitt aðalhólf er á töskunni og fylgir rykpoki með.
Ótrúlega vinsæl, hentug og glæsileg Neverfull taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu með gylltum málm. Eitt stórt aðalhólf er á töskunni með eitt auka rennt hólf og krók. Taskan var framleidd árið 2011 og hægt er að snúa töskunni við og nota hana öfuga, sem er sjúklega kúl! Kostar ný $2,170.00, eða 265,260isk á núverandi gengi.
Sæt og lítil taska frá Louis Vuitton í monogram canvas með gylltum málm. Eitt aðalhólf sem lokað með segli.
Ótrúlega sæt tote taska frá Fendi í brúna "Tobacco Zucca" canvasnum með ísaumað tígul mynstur (e. Quilted). Taskan er aðeins fóðruð og því kjörin tote taska fyrir íslenskt veðurfar. Eitt rennt aðalhólf og einn stór, auka, renndur vasi þar fyrir innan. Lítil opin auka hólf í hliðunum. Höldur eru úr svörtu glansandi leðri og á öðru haldfanginu er fjarlægjanlegt stórt "FF" málm skraut. Efri brún töskunnar er í sama Patent leðri.
Æðisleg Ophidia taska, með Web línu (rauð og græn) fyrir miðju, frá Gucci í GG Supreme canvasnum af stærðinni Small. Taskan opnast með smellu undir flipanum (e. flap), þar undir er eitt rúmgott aðalhólf, einn frekar rúmur flatur vasi þar fyrir framan. Í aðalhólfinu er einn flatur renndur vasi og opinn flatur vasi. Allur málmur er gylltur. Brúnt leður á slitflötum og er stillanlega ólin í sama leðri. Upprunalegur rykpoki og kassi fylgir með. Kostar ný um 275.000kr.
Falleg og hentug tote taska frá Fendi í klassíska og eftirsótta Zucca monogram mynstrinu. Með dökkbrúnum leðurhöldum og einum renndum vasa í innvolsi.
Æðisleg hversdags taska frá Chloé í Linen canvas, brúnu kálfaleðri og polyester. Bæði hægt að halda á henni og nota hana sem hliðartösku (e. crossbody bag) þar sem löng brún ól fylgir með. Eitt rúmgott aðalhólf og einn flatur vasi að innan. Kostar um 152.000kr skv. núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki, verslunarpoki og upprunakort fylgir með.
Sígild Alma PM taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu. Að innanverði er eitt stórt aðalhólf með einum smærri vasa og gamaldags vasa undir gemsa. Málmur er gylltur. Kostar ný 1820 evrur. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Sæt, lítil bucket taska frá Gucci í klassíska endurtekna ''GG'' mynstrinu með web (rauð og græn) línunni að neðan. Eitt aðalhólf sem lokast með togbandi og stillanleg axlaról. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.
Single Flap hliðartaska frá Chanel í svörtu lambaleðri með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Klikkað sæt mini Tote taska frá Prada í metallic lit. Þrjú aðalhólf eru á töskunni, tvö opin og eitt rennt. Með töskunni fylgir stillanleg ól, lyklar og bæði upprunalegur kassi og rykpoki.