Verslaðu merkjavöru á afslætti Versla Núna

Frí sending í póstbox innan Íslands

Allar vörur eru vottaðar Ekta af sérfræðingum

Töskur

Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!

Gucci Dionysus mini hliðartaska Gucci Dionysus mini hliðartaska
Gucci Dionysus mini hliðartaska 160.000 kr

Ótrúlega sæt Dionysus mini hliðartaska frá Gucci í GG Supreme mynstrinu, með svörtu rúskinni í innvolsi. Klassísk, silfruð málmskeifa að framanverðu og gróf keðja í sama lit sem hægt er að hafa cross-body eða tvöfalda.

Chanel Cambon Tote taska Chanel Cambon Tote taska
Chanel Cambon Tote taska 100.000 kr

Cambon Tote taska frá Chanel í brúnu kálfaleðri með CC lógó í patent leðri. Eitt rennt aðalhólf í glæsilegum appelsínugulum lit með einu auka renndu hólfi og tveimur pennahólfum. Upprunalegur rykpoki með.

Burberry Boston taska Burberry Boston taska
Burberry Boston taska 35.000 kr

Æðisleg Boston taska frá Burberry með klassíska Nova Check mynstrinu, brúnum leður áherslum og gull tónuðum málmum. Svart leður innvols og svört plast plata í botni töskunnar til að styða við form töskunnar og verja botninn. Einnig eru plast tappar undir töskunni. Eitt rennt aðalhólf ásamt litlum renndum vasa á utanverðri hlið töskunnar. ATH ástand.

Louis Vuitton Alma PM taska Louis Vuitton Alma PM taska
Louis Vuitton Alma PM taska 50.000 kr

Louis Vuitton Alma taska í monogram canvas með gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka opnu hólfi.

Louis Vuitton Artsy MM taska Louis Vuitton Artsy MM taska
Louis Vuitton Artsy MM taska 190.000 kr

Hrikalega flott Artsy MM hliðartaska frá Louis Vuitton í monogram canvas og gylltum málm. Eitt rúmgott, opið aðalhólf er á töskunni með auka hólfum ofan í, eitt rennt og fimm opin. Með töskunni kemur lyklakippuól sem hægt er að fjarlægja.

Louis Vuitton Blois hliðartaska Louis Vuitton Blois hliðartaska
Louis Vuitton Blois hliðartaska 130.000 kr

Glæsileg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan er í brúna Monogram canvasinum með gylltum málm. Þrjú hólf eru á töskunni, eitt gott aðalhólf með einu opnu hólfi og eitt auka opið hólf að framan. Stillanleg ól og framleidd árið 2006.

Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska
Louis Vuitton Speedy 30 Bandoulière taska 175.000 kr

Glæsileg og vinsæl Speedy 30 frá Louis Vuitton í damier ebene canvas og gylltum málm. Eitt rennt stórt aðalhólf með einu auka hólfi. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól, lás og lykill, upprunalegur rykpoki og kassi. Taskan var framleidd árið 2017.

Prada Travel Chain taska Prada Travel Chain taska
Prada Travel Chain taska 120.990 kr

Glæsileg Travel Chain taska frá Prada í dökkbláu Nylon efni, með dökkbláum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf með einum renndum vasa í innvolsi. Fléttaðar keðjuhöldur með leðri ásamt leðri fyrir miðju til að tryggja þægindi. Undir töskunni eru fimm málm tappar til að verja Nylon efnið. Með töskunni fylgir lyklaband og tveir lyklar en enginn lás.

Gucci GG Supreme Web hliðartaska Gucci GG Supreme Web hliðartaska
Gucci GG Supreme Web hliðartaska 82.000 kr

Glæsileg Gucci hliðartaska í GG Supreme canvas með ljósbrúnum leður áherslum og gulltónuðum málmum úr Accessory Collection línunni. Eitt rennt aðalhólf og þar fyrir innan er einnig renndur vasi. Framan á töskunni er Web (græn og rauð) lína með segul smellu á endanum til að loka vasanum að framanverðu, að hluta. Áföst stillanleg leðuról. Upprunalegur rykpoki fylgir með.

Gucci GG Supreme Messenger taska Gucci GG Supreme Messenger taska
Gucci GG Supreme Messenger taska 85.000 kr

Messenger taska frá Gucci í endingargóðu GG Supreme canvas með brúnum leður áherslum,gulltónuðum málmum og brúnni stillanlegri tau ól. Taskan opnast að framan með segul smellu undir flipanum, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf og einn opinn vasi í innvolsi.

Gucci vintage GG Supreme Sherry Line hliðartaska Gucci vintage GG Supreme Sherry Line hliðartaska
Gucci vintage GG Supreme Sherry Line hliðartaska 79.990 kr

Æðisleg vintage Sherry Line Gucci taska í endingargóðu GG Supreme PVC canvas, með brúnum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Lítil Web (græn og rauð) lykkja að framanverðu. Eitt rennt aðalhólf og áföst leðuról.

Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska
Gucci GG Supreme Vintage Web Sherry Line taska 88.000 kr

Æðisleg vintage GG Supreme Web Sherry Line crossboy taska frá Gucci. Taskan er úr glæsilega PVC GG Supreme efninu með brúnum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Einnig er Web (græn og rauð) niður miðju töskunnar. Eitt rennt aðalhólf og áföst leður crossbody ól sem er aðeins stillanleg.

Gucci Marmont Small hliðartaska Gucci Marmont Small hliðartaska
Gucci Marmont Small hliðartaska 175.000 kr

Eftirsótt og falleg Gucci Marmont hliðartaska í stærðinni Small. Taskan opnast með læsingu að framan, eitt aðahólf og eitt opið lítið hólf. Taskan er úr svörtu leðri og með gull tónuðum málmum. Keðjuól með leðri að hluta til að tryggja þægindi. Upprunalegur kassi, rykpoki, bæklingur og leðurbót fylgir með. Kostar ný $2600 sem samsvarar um 327.000isk.

Prada Nylon Tessuto Pochette taska Prada Nylon Tessuto Pochette taska
Prada Nylon Tessuto Pochette taska 65.990 kr

Pochette taska frá Prada í svörtu Nylon Tessuto efni með silfur tónuðum málmum og flotta þríhyrnda lógóinu að framan. Eitt rennt aðalhólf.

Gucci GG Supreme Messenger taska Gucci GG Supreme Messenger taska
Gucci GG Supreme Messenger taska 90.000 kr

Æðisleg svört GG Supreme Monogram Messenger taska frá Gucci. Taskan skartar frægu dökkbláu og rauðu Web línunum á ólinni, sem er stillanleg. Framan á er einn renndur vasi en í aðalhólfinu einn opinn vasi og tveir kortavasar. Upprunalegur rykpoki fylgir.

Gucci Soho Tote taska Gucci Soho Tote taska
Gucci Soho Tote taska 80.000 kr

Hentug Gucci Soho Tote taska í svörtum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.

Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50
Louis Vuitton Keepall Bandoulière 50 180.000 kr

Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.

Prada Duffle taska Prada Duffle taska
Prada Duffle taska 75.000 kr

Æðisleg Duffle taska frá Prada úr Nylon efni og með leður áherslum. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf ásamt auka renndum vasa í innvolsi. Með töskunni fylgir ómerktur lás og tveir lyklar á bandi ásamt upprunalegum rykpoka og leður nafnspjaldi.

Chanel Paris Limited Two-tone CC Classic Double Flap Chanel Paris Limited Two-tone CC Classic Double Flap
Chanel Paris Limited Two-tone CC Classic Double Flap 850.000 kr

Classic Double Flap frá Chanel með tvítónuðum málmi að framan. CC lógóið framan á töskunni er bæði silfur- og 24K gullhúðaður málmur sem er einkennandi fyrir þennan safngrip, sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan var framleidd í tveimur stærðum, 26 og 28 cm og er þessi taskan minni stærðin sem er enn erfiðara að fá. Þessi taska hefur verið vinsæl og eftirsótt meðal safnara vegna hennar einkennandi útlits og vegna þess að hún var einungis framleidd og seld í verslunum í París á sínum tíma. Taskan er í svörtu lambaleðri en er innvols vínrautt. Undir ytri flipanum er einn flatur vasi og undir innri flipanum er eitt rúmgott aðalhólf, einn renndur flatur vasi, tveirr smærri opnir vasar og einn stærri flatur fyrir framan aðal hólfið. Ytri flipinn opnast með CC turn-lock læsingu og innri flipinn með smellu. Aftan á töskunni er einn flatur vasi. Allir málmar eru gulltónaðir fyrir utan annað C-ið í lógóinu að framan. Keðjuólin er fléttuð með svörtu leðri. Framleidd um 1991-1994. Upprunakort og upprunalegur rykpoki fylgir með.

Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska
Chanel Single Flap Jumbo vintage axlar/hliðartaska 744.000 kr

Tímalaus og glæsileg Single Flap axlar/hliðartaska frá Chanel í gömlu Jumbo stærðinni. Taskan opnast með klassíska CC turn-lock læsingunni að framan, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf, einn flatur opinn vasi og einn flatur renndur vasi. Einnig er opinn flatur vasi að aftan. Taskan er í svörtu lambaleðri og er allt innvols einnig svart. Allir málmar gullhúðaðir með 24K gulli. Upprunalegur rykpoki og uppruna kort fylgir með. Framleidd á bilinu 1994-1996.

Chanel Medium Classic Double Flap Chanel Medium Classic Double Flap
Chanel Medium Classic Double Flap 610.000 kr

Eftirsótt og sígild Classic Double Flap frá Chanel í stærðinni Medium. CC turn-lock læsing að framan í 24K gullhúðuðum málmi sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan er gerð úr svörtu lambaleðri með ísaumuðu tíglamynstri (e. quilted). Keðjuól er þrædd með svörtu leðri. Innvols er vínrautt og svart. Undir ystri flipanum er einn flatur vasi og örmjór renndur vasi í flipanum sjálfum. Undir innri flipanum er rúmgott opið aðalhólf, tveir flatir vasar og annar rýmri flatur vasi framan við aðalhólfið. Framleidd í kring um 1996-1997.

Miu Miu leður axlartaska Miu Miu leður axlartaska
Miu Miu leður axlartaska 48.000 kr

Glæsileg leður axlartaska frá Miu Miu í rauðu leðri og með gull tónuðum málmum. Aðalhólfið opnast/lokast með segul smellu á leðurflipa. Aðalhólfið skiptist í tvö misstór opin hólf og einn renndan vasa þar á milli, einnig er renndur vasi í innra opna hólfinu. Framan á töskunni er lás sem hægt er að læsa/aflæsa og þrýsta til hliðar og opna þar annan nettan vasa. Með töskunni fylgir lykill á bandi og crossbody ól sem hægt er að taka af.

Gucci Python Bamboo axlartaska Gucci Python Bamboo axlartaska
Gucci Python Bamboo axlartaska 120.000 kr

Falleg Gucci Python axlartaska í snáka líkis leðri og með svörtu bambus haldfangi. Málmar eru gulltónaðir og er áfast lítið veski sem fylgir með.

Balenciaga Motocross Le Cagole XS taska Balenciaga Motocross Le Cagole XS taska
Balenciaga Motocross Le Cagole XS taska 185.000 kr

Ótrúlega töff Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í xs, minnstu stærðinni, sem er jafn framt vinsælasta stærðin af Balenciaga töskum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og keðjuól sem er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda eftir því hvort hentar betur og krókur á öðrum endanum. Silfur tónaður málmur með svörtum áherslum. Fjarlægjanlegt klink veski og spegill fylgir með ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er úr svörtu, lituðu, lambaskinni frá haust/vetrar línunni 2021. Því er taskan framleidd seint 2021 eða mjög snemma 2022. Kostar ný í dag um 280.000 kr.

Verslun
Leita
Aðgangur
0
Óskalisti
0
Karfa
Innskráning
Filter