Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Eftirsótt og falleg Gucci Marmont hliðartaska í stærðinni Small. Taskan opnast með læsingu að framan, eitt aðahólf og eitt opið lítið hólf. Taskan er úr svörtu leðri og með gull tónuðum málmum. Keðjuól með leðri að hluta til að tryggja þægindi. Upprunalegur kassi, rykpoki, bæklingur og leðurbót fylgir með. Kostar ný $2600 sem samsvarar um 327.000isk.
Æðisleg vintage GG Supreme Web Sherry Line crossboy taska frá Gucci. Taskan er úr glæsilega PVC GG Supreme efninu með brúnum leður áherslum og gulltónuðum málmum. Einnig er Web (græn og rauð) niður miðju töskunnar. Eitt rennt aðalhólf og áföst leður crossbody ól sem er aðeins stillanleg.
Messenger taska frá Gucci í endingargóðu GG Supreme canvas með brúnum leður áherslum,gulltónuðum málmum og brúnni stillanlegri tau ól. Taskan opnast að framan með segul smellu undir flipanum, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf og einn opinn vasi í innvolsi.
Æðisleg Duffle taska frá Prada úr Nylon efni og með leður áherslum. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf ásamt auka renndum vasa í innvolsi. Með töskunni fylgir ómerktur lás og tveir lyklar á bandi ásamt upprunalegum rykpoka og leður nafnspjaldi.
Hentug Gucci Soho Tote taska í svörtum lit með gylltum málm og áhangandi kögri að framan. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin.
Æðisleg og eftirsótt Keepall Bandoulière frá Louis Vuitton í stærðinni 50. Eitt rennt aðalhólf. Framleidd í Frakklandi, Janúar 1998. Upprunalegur rykpoki og Vachetta ól fylgir með.
Eftirsótt og sígild Classic Double Flap frá Chanel í stærðinni Medium. CC turn-lock læsing að framan í 24K gullhúðuðum málmi sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan er gerð úr svörtu lambaleðri með ísaumuðu tíglamynstri (e. quilted). Keðjuól er þrædd með svörtu leðri. Innvols er vínrautt og svart. Undir ystri flipanum er einn flatur vasi og örmjór renndur vasi í flipanum sjálfum. Undir innri flipanum er rúmgott opið aðalhólf, tveir flatir vasar og annar rýmri flatur vasi framan við aðalhólfið. Framleidd í kring um 1996-1997.
Tímalaus og glæsileg Single Flap axlar/hliðartaska frá Chanel í gömlu Jumbo stærðinni. Taskan opnast með klassíska CC turn-lock læsingunni að framan, þar fyrir innan er eitt rúmgott aðalhólf, einn flatur opinn vasi og einn flatur renndur vasi. Einnig er opinn flatur vasi að aftan. Taskan er í svörtu lambaleðri og er allt innvols einnig svart. Allir málmar gullhúðaðir með 24K gulli. Upprunalegur rykpoki og uppruna kort fylgir með. Framleidd á bilinu 1994-1996.
Classic Double Flap frá Chanel með tvítónuðum málmi að framan. CC lógóið framan á töskunni er bæði silfur- og 24K gullhúðaður málmur sem er einkennandi fyrir þennan safngrip, sem og aðrir málmar töskunnar. Taskan var framleidd í tveimur stærðum, 26 og 28 cm og er þessi taskan minni stærðin sem er enn erfiðara að fá. Þessi taska hefur verið vinsæl og eftirsótt meðal safnara vegna hennar einkennandi útlits og vegna þess að hún var einungis framleidd og seld í verslunum í París á sínum tíma. Taskan er í svörtu lambaleðri en er innvols vínrautt. Undir ytri flipanum er einn flatur vasi og undir innri flipanum er eitt rúmgott aðalhólf, einn renndur flatur vasi, tveirr smærri opnir vasar og einn stærri flatur fyrir framan aðal hólfið. Ytri flipinn opnast með CC turn-lock læsingu og innri flipinn með smellu. Aftan á töskunni er einn flatur vasi. Allir málmar eru gulltónaðir fyrir utan annað C-ið í lógóinu að framan. Keðjuólin er fléttuð með svörtu leðri. Framleidd um 1991-1994. Upprunakort og upprunalegur rykpoki fylgir með.
Glæsileg leður axlartaska frá Miu Miu í rauðu leðri og með gull tónuðum málmum. Aðalhólfið opnast/lokast með segul smellu á leðurflipa. Aðalhólfið skiptist í tvö misstór opin hólf og einn renndan vasa þar á milli, einnig er renndur vasi í innra opna hólfinu. Framan á töskunni er lás sem hægt er að læsa/aflæsa og þrýsta til hliðar og opna þar annan nettan vasa. Með töskunni fylgir lykill á bandi og crossbody ól sem hægt er að taka af.
Æðisleg Travel Line Tote taska frá Chanel í drapplituðu. Canvas töskunnar er úr Nylon og höldurnar úr leðri. Málmar eru gulltónaðir. Eitt opið aðalhólf og þar að innan eru tveir rúmgóðir renndir vasar og krókur á bandi til að festa t.d. lykla eða seðlaveski.
Falleg Gucci Python axlartaska í snáka líkis leðri og með svörtu bambus haldfangi. Málmar eru gulltónaðir og er áfast lítið veski sem fylgir með.
Falleg og stílhrein Tote taska frá Chanel í svörtu caviar leðri með vínrauðu tau innvolsi. Hægt er að renna aðal hólfi að miklu leiti, í hliðum aðal hólfsins er öðru megin renndur vasi og hinu megin tveir misstórir opnir vasar. Málmar töskunnar eru silfur litaðir og með töskunni fylgir CC bag charm sem er fjarlægjanlegt. Pochette fylgir og er á bandi sem er fast við töskuna en krókur er á enda þess og því hægt að taka Pochette af til að nota sér. Upprunakort og bæklingur fylgir með.
Ótrúlega töff Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í xs, minnstu stærðinni, sem er jafn framt vinsælasta stærðin af Balenciaga töskum. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og keðjuól sem er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda eftir því hvort hentar betur og krókur á öðrum endanum. Silfur tónaður málmur með svörtum áherslum. Fjarlægjanlegt klink veski og spegill fylgir með ásamt upprunalegum rykpoka. Taskan er úr svörtu, lituðu, lambaskinni frá haust/vetrar línunni 2021. Því er taskan framleidd seint 2021 eða mjög snemma 2022. Kostar ný í dag um 280.000 kr.
Gucci hliðartaska í svörtu nylon efni með web (rauð & græn) línunni að framan og svörtu GG lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt, eitt opið og annað með smellu. Stillanleg ól.
Gullfalleg, trending Chloé Paddington taska í metallic lit með silfur málm. Nokkur hólf eru á töskunni, eitt rennt aðalhólf með einu renndu hólfi og einu opnu í innvolsi, tvö auka opin og þrjú sem læsast með beltisskrauti.
Vintage keepall taska frá Louis Vuitton í klassíska monogam canvas og gylltum málm. Eitt stórt og rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir bæði merkispjald og lítil ól til að festa saman handföngin - framleidd 1991
Svört leður og suede taska frá Prada, eitt rennt aðalhólf er á töskunni með sex auka hólfum, eitt í innvolsi, fjögur opin að utan og eitt rennt.
Hrikalega flott Lady Dior taska frá Christian Dior. Taskan er í dökkdökk grænum lit með bláu og hvítu floral printi og silfur málm. Eitt aðalhólf err á töskunni, sem opnast og lokast með smellu, þar ofan í eru tvö auka hólf. Með töskunni fylgir fjarlægjanleg ól og veski með.
Æðisleg axlartaska frá Gucci með skemmtilegum rennilásadíteilum að framanverðu (litlir vasar). Taskan er í svörtu Monogram og með silfruðum málmi. Aðalhólfið er rennt en í innvolsi er einn renndur vasi.
Hvíta Triangle taskan frá Prada úr leðri. Taskan er skemmtileg í lögun eins og þríhyrnda Prada lógóið. Aðalhólfið er rennt en á ólinni er einnig minna rennt veski sem hægt er að smella af ef maður vill. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðisleg hekluð LAX taska frá Chanel úr bómull og leðri í kremuðum lit. Málmur er silfraður og að framan er stór niðurhleypt CHANEL merking í leðrinu. Aðalhólfið er rennt og í innvolsi er einn minni renndur vasi. Að framan og aftan eru opnir vasar sem opnast og lokast með segullokun. Taskan er frá árinu 2005.
Æðisleg hliðartaska frá Louis Vuitton. Taskan opnast að framan undir svörtu og gylltu stóru LV lógói, þar undir er segulloki. Innvols er vínrautt og með einu rúmgóðu hólfi ásamt renndum vasa. Þar fyrir framan er opinn auka vasi. Málmar eru gulltóna, fyrir utan lógó að framan. Einnig er opinn flatur vasi aftan á töskunni. Gyllt keðjuól sem er að hluta með svörtu leðri fyrir aukin þægindi. Ólina er hægt að hafa einfalda eða tvöfalda. Fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki með.
Sturluð Paloma clutch frá Christian Louboutin í svörtu leðri með gylltum málm og rauðu innvolsi. Taskan opnast með segulloka undir leður flipanum, innvols er svart og rautt. Í innvolsi er eitt opið aðalhólf, 10 kortahólf, renndur vasi og tveir mis rúmgóðir flatir vasar. Gull tóna keðjuól fylgir með en er fjarlægjanleg með krókum, ólin er að hluta með svörtu og rauðu leðri fyrir aukin þægindi. Hægt er að nota ólina einfalda eða "krossa" undir leðurflipanum til að stytta hana og nota sem axlartösku. Einnig hægt að taka ólina af til að nota töskuna ólarlausa eða sem "clutch". Upprunalegur rykpoki og verslunarpoki fylgir með.