Vottaðar töskur frá lúxusmerkjum eins og Louis Vuitton, Gucci, Chanel, Fendi og mörgum fleirum. Töskurnar hafa verið vottaðar af sérfræðingum og eru verðmetnar miðað við núverandi markaðsgengi útfrá ástandi. Hjá Attikk finnur þú þína drauma tösku!
Æðisleg kassalögum Nylon taska frá Prada með málmlógó að framanverðu í stækkaðri útgáfu. Aðalhólfið er lokað með segulsmellu en í innvolsi er einn renndur vasi.
Æðisleg og sjaldgæf lítil cross-body taska frá Gucci úr Gucci Plus línunni. Aðalhólf er rennt.
Æðisleg og sígild Pochette Accessoires taska frá Louis Vuitton í Monogram útgáfu. Lítil keðja og önnur lengri (axlarlengd) fylgja en hvorugar eru upprunalegar. Aðalhólf er rennt.
Æðisleg vatteruð Nylon Tote taska frá Prada, með klassíska málmlógóinu á annarri hliðinni. Aðalhólfið er rennt með einum renndum vasa í innvolsi.
Vinsæla Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í Damier Ebene útgáfu með rauðu innvolsi. Eitt stórt aðalhólf með einum renndum vasa. Hægt er að loka aðalhólfinu með krækju. Taskan er upphaflega hönnuð til að vera reversible, þ.e. hægt er að snúa hana á röngunni einnig. Taskan kostar ný 1.550 eur hjá Louis Vuitton, eða um 230.000 isk á núverandi kortagengi. Um er að ræða vinsælustu töskuna frá Louis Vuitton í endursölu.
Vinsæla Neverfull MM taskan frá Louis Vuitton í Damier Azur útgáfu með ljós beige innvolsi. Eitt stórt aðalhólf með einum renndum vasa. Hægt er að loka aðalhólfinu með krækju. Taskan er upphaflega hönnuð til að vera reversible, þ.e. hægt er að snúa hana á röngunni einnig. Taskan kostar ný 1.550 eur hjá Louis Vuitton, eða um 230.000 isk á núverandi kortagengi. Um er að ræða vinsælustu töskuna frá Louis Vuitton í endursölu.
Falleg og hentug Musette Tango hliðartaska frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvasinum með gylltum málm. Taskan opnast með flipa og hefur eitt rúmgott aðalhólf með einu opnu auka hólfi. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Skemmtileg, vintage jakkafatataska frá Gucci í Supreme mynstrinu. Eitt hólf sem hentar vel fyrir skópör og annað stærra fyrir fatnað, þar eru tvö herðatré sem hægt er að hengja flíkurnar á. Lás og lyklar fylgja með.
Glæsileg svört Canapa tote taska frá Prada með stóru hvítu prentuðu lógó að framan. Í töskunni er einn renndur vasi og tveir opnir, tveir þeirra rúma flesta snjallsíma. Stillanleg crossbody ól fylgir með.
Fallegur og hentugur Ellipse bakpoki frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með ljós brúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt rúmgott aðalhólf erá töskunni, þar ofan í er eitt auka hólf. Hægt er að lengja og stytta leðurböndin. Framleidd árið 1999.
Lítil og hentug Ipanema taska frá Louis Vuitton í Damier Ebene mynstrinu. Eitt rennt aðalhólf og eitt auka hólf að framan. Framleidd árið 2003 og fylgir stillanleg ól með.
Einstök og falleg Chevron Gabrielle hobo taska frá Chanel í ótrúlega flottum metallic grænum lit með bæði silfur og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með þremur auka hólfum, eitt rennt og tvö opin. Taskan var framleidd árið 2019 og fylgir bæði upprunalegur kassi og kort
Ótrúlega fallegir skór með láum hæl frá Chanel. Skórnir eru bæði í hvítum og svörtum lit.
Falleg og hentug Pallas hliðartaska frá Louis Vuitton í brúna Monogram canvas með svörtu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með tveimur auka hólfum, eitt opið að framan og eitt opið innan. Tvær fjarlægjanlegar ólar fylgja með, ein styttri keðjuól og ein leðuról. Taskan var framleidd árið 2016.
Falleg og stílleg axlartaska frá Fendi í ljósum ''kremilituðum'' lit með gylltum málm og fallegri auka keðjuól - hægt er að fjarlægja leðurólina og nota þá keðju. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og fylgir upprunalegur rykpoki og verslunarpoki
Mjög eftirsótt og klassísk Soho taska frá Gucci í svörtu leðri með gylltum áherslum. Á töskunni er Ísaumað upphleypt GG lógó að framanverðu og á rennilás er leðurkögur. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur tvo innri flata vasa. ATH ÁSTAND!
Glæsileg Wallet On Chain frá Chanel með ská vatteruðu (e. Diagonal Quilted) leðri. Veskið opnast með smellu að framan og þar eru ýmis hólf svo sem eitt flatt, rennt, stórt hólf, rúmgott hólf með sex hólfum fyrir greiðslukort, rúmgott rennt hólf og annað flatt hólf sem er frekar rúmgott. Allir málmar eru gull tónaðir. Ólin er fléttuð úr gylltri málm keðju og leðri í sama vínrauða lit og veskið er, þó ólin sé ekki fjarlægjanleg þá er hægt að smeygja henni ofan í eitt af hólfunum. Því er hægt að bera veskið á ýmsa vegu sma hvort það sé í hendi, á öxl eða þvert yfir líkamann (e. crossbody). Með veskinu fylgir upprunalegi rykpokinn og upprunakort frá Chanel. Veskið var framleitt á árunum 2016-2017.
Glæsileg taska frá Louis Vuitton í Damier Geant Citadin gerðinni. Leður áherslur í í dökkbrúnum lit og málmar silfurlitaðir. Bæði að framan og aftan á töskunni stendur "Louis Vuitton Paris". Taskan er svört á litinn og hefur 1 rennt aðalhólf og tvö auka opin hólf að innan. Rennt hólf framan á töskunni og opið hólf aftan á. Taskan er frá árinu 2006. Stillanleg ól.
Hrikalega töff neon græn Le Cagole hliðartaska frá Balenciaga í minnstu stærðinni. Eitt rennt aðalhólf er á töskunni og stillanleg ól. Einnig er fjarlægjanlegt veski og spegill að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Gullfalleg Alma taska frá Louis Vuitton í stæðinni BB. Taskan er í fallegu appelsínugulu epi leðri en epi leðrið er kúaleður sem gerir töskuna mjög endingargóða. Taskan opnast með tvöföldum rennilás að ofan, inn í töskunni er eitt rúmgott hólf ásamt auka flötum vasa. Tvö handfönd eru á töskunni ásamt fjarlægjanlegri leðuról svo hægt væri að bera töskunni á öxl eða á ská yfir líkamann (e. crossbody). Málmarnir á töskunni eru silfurlitaðir. Með töskunni fylgir lás, í upprunalegum rykpoka og einn lykill, upprunalegur rykpoki fyrir töskuna og upprunalegur kassi. Taskan var framleidd í 15. viku ársins 2013 í Frakklandi.
Balenciaga Neo Classic City í "All Black". Taskan sameinar klassíska hönnun með skýrari línum, uppfærðu leðri og smáatriðum sem gerir töskuna praktíska í daglegri notkun. Framan á töskunni er stendur 'Balenciaga'. Taskan er úr svörtu leðri sem er slitsterkt og heldur sér vel. Að framan er rennilásavasi með áberandi smáatriðum, og innvolsið er rúmgott með rennilásavasa og auka vasa. Taskan er með tvö sterk handföng og á töskunni eru sér hankar fyrir ól, en því miður fylgir engin ól með.
Geggjað Dior Oblique veski, eða taska úr klassíska „Oblique“ mynstrinu frá Dior. Á töskunni er handfang sem getur farið utan um úlnliðinn, þannig að það er auðvelt að bera hana á hendi. Taskan er úr slitsterku efni með dökku leðri og silfur málmi. Að framan er flatur rennilásavasi, og að innan er rúmgott aðalhólf með skipulögðum kortahólfum og auka vasa.
Tom Ford tote taska úr slitsterku brúnu canvas efni með svörtum leðurumgjörðum og botni. Með töskunni fylgir stillanleg og fjarlægjanleg ól, en á töskunni eru tvö löng leður handföng. Að innan er rúmgott aðalhólf sem hægt er að renna sem inniheldur einn minni vasi sem hentar vel fyrir smáhluti. Að framan er stendur Tom Ford á svörtu leðri. Taskan hentar jafnt í vinnu, daglega notkun eða sem ferðataska.