Fjölbreytt úrval af fatnaði frá öllum helstu lúxus merkjunum. Auk gullmola frá "Street Fashion" merkjunum. Hjá Attikk finnur þú fjölbreytt úrval af fatnaði í flestum stærðum sem hefur verið vottaður sem ekta af sérfræðingum í hverju merki fyrir sig. Mundu að Attikk er bara með eitt eintak af hverri vöru þannig þú gætir þurft að hafa hraðar hendur.
Klassískur og flottur rykfrakki frá Burberry’s í drapplituðum lit með Nova Check munstrinu í innvolsi.
Skemmtilegur og flottur rykfrakki frá Burberry í drapplituðum lit með svörtu lógó og Nova Check mynstrinu innan í.
Falleg og sjaldgæf kápa frá Dolce & Gabbana í gráum lit með svörtum tölum og doppum í innvolsi.
Falleg 100% ullarkápa frá Gucci í bláum lit með rauðum detail, sætum tölum og bleiku innvolsi.
Mjög sjaldgæfur og klikkað fallegur leðurjakki frá Dolce & Gabbana í brúnum lit með refa loði.
Hrikalega fallegur og sjaldgæfur svartur jakki frá Yves Saint Laurent í 100% ull, líklegast frá 90s / early 2000s.
Æðsileg ullar/kasmír Wrap kápa frá Burberry sem hefur verið kennd við Sherringham. Kápan er 80% ull og 20% kasmír. Undir kraga er Nova Check mynstur, að framan eru tveir opnir vasar og er kápunni lokað með belti eingöngu. Kápan kostaði ný um 360.000 isk.
Flott aðsniðin skyrta frá Versace í svörtu og gylltu ''Barocco'' printi með gylltri tölu efst. Upprunalegur rykpoki og herðatré fylgir með.
Glæsilegur stutterma bolur frá Fendi í ljósa ''FF'' mynstrinu. Kostar nýr um 156.000kr.
Klassískur stuttermabolur frá Christian Dior í hvítum lit með ''CD'' lógó að framan. Kostar nýr um 86.000kr.
Töff bolur frá Versace í svörtum lit með klikkuðu steina skrauti að framan sem skartar fallegri hringlóttri mynd af Medusa hausnum og Versace mynstrinu þar um kring.
Glæsileg crerwneck peysa frá Fendi í svörtum lit með vasa í ''FF'' mynstrinu að framan. Kostar ný € 920,00, eða 132.728isk á núverandi gengi.
Glæsilegur jakki frá Moncler í dökkum lit, með fjórum vösum að framan og tveimur rennilásum.
Ótrúlega flottur jakki frá Moncler í bláaum og rauðum lit, með hettu og tveimur renndum vösum að framan.
Svartar joggingbuxur frá Prada sem skarta vínrauðu nylon efni meðfram vinstri fæti að framanverðu. Neðst á skálmum er franskur rennilás með gúmmílógó. Tveir vasar að framanverðu og einn rassvasi - stillanlegt band í mitti.
Skemmtilegt vesti frá Burberry í dökkum lit, með Nova Check mynstrinu að innan. Hægt er að nota vestið á röngunni.
Svört, síð Lanoux dúnúlpa með belti frá Moncler. Tveir renndir vasar að framanverðu og hægt að renna hettunni af.
Hrikalega flott silki skyrta frá Versace með Baroque Medusa mynstri. Skyrtan er hneppt upp að framan og er í Heritage Fit (sniði). Efsta hneppan á skyrtunni er gulllituð og er með Medusa merkinu, hinar tölurnar eru svartar. Virkilega flott og smart skyrta í stærð 48.
Fallegur sundboldur frá Chanel í bleikum, bláum og hvítum lit. Hliðarnar eru með opum og þar á milli er fallegt ''CC'' kristalla lógó. Frá 2022 Collection eftir Virginie Viard.
Flott síðúlpa frá Moncler í svörtum lit, bæði tölur og rennilás er á úlpunni og dökkt Moncler lógó á ermi. Ath. ástand