Franska lúxus merkið Chloé var stofnað árið 1952 af Gaby Aghion. Attikk fær reglulega inn mjög fallegar töskur frá Chloé merkinu.
Æðisleg hversdags taska frá Chloé í Linen canvas, brúnu kálfaleðri og polyester. Bæði hægt að halda á henni og nota hana sem hliðartösku (e. crossbody bag) þar sem löng brún ól fylgir með. Eitt rúmgott aðalhólf og einn flatur vasi að innan. Kostar um 152.000kr skv. núverandi kortagengi. Upprunalegur rykpoki, verslunarpoki og upprunakort fylgir með.
Gullfalleg, trending Chloé Paddington taska í metallic lit með silfur málm. Nokkur hólf eru á töskunni, eitt rennt aðalhólf með einu renndu hólfi og einu opnu í innvolsi, tvö auka opin og þrjú sem læsast með beltisskrauti.
Hrikalega fallegir skór frá Chloé í svörtum lit, gerðir úr blúndu og neti. Með skónum fylgir upprunalegir rykpokar.
Gæðaleg og vinsæl Woody Tote taska frá Chloé í stærðinni Medium. Fullkomin hversdags taska í vinnuna og/eða skólann. Eitt stórt opið hólf og einn lítill vasi í innvolsi. Með töskunni fylgir upprunalegur rykpoki.
Chloé Marcie hliðartaska í litnum Motty Grey (brúngráleitur litur) með gylltum málmi. Marcie línan frá Chloé er ein sú vinsælasta með handsaumuðum skreytingum að framan. Taskan opnast með flipa og hefur eitt aðalhólf og einn minni flatan vasa. Með töskunni fylgir rykpoki.