Eitt af vinsælli lúxus merkjum hjá íslendingum þessa dagana er Gucci. Hjá Attikk kemur mikið af vörum frá þeim í hverri einustu viku og eru þær oft á tíðum jafn fljótar að fara í hendur nýrra eiganda. Verandi vinsælt merki er einnig algengt að eftirlíkingar séu í umferð, viðskiptavinir Attikk geta verið vissir að allar Gucci vörur sem seldar eru hjá Attikk séu ekta þar sem þær gangast allar undir ítarlega skoðun hjá sérfræðingum.
Tote taska frá Gucci í supreme PVC með dökkbrúnum höldum. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi
Sæt Boston taska frá Gucci í svörtu supreme mynstri með gylltum málm. Rennilás aðal hólfsins er með málm á endanum sem smellist á hliðinni. Eitt rúmgott og rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi að innan.
Sígild Soho Disco taska frá Gucci í svörtum lit með gylltum málmi. Á töskunni er Ísaumað GG lógó að framanverðu og á rennilás er leðurkögur. Taskan hefur eitt rennt aðalhólf sem hefur einn innri flatan vasa.
Ótrúlega falleg hobo taska frá Gucci í supreme mynstrinu, með dökkbrúnu leðri og gylltum málm. Eitt rennt aðalhólf með einu auka renndu hólfi. Á haldfanginu er eftirsótti Horsebit málmurinn.
Fallegur hringur úr gulltónuðum málmi með ljónshöfði sem heldur á fallegum bleikum kristalssteini frá Gucci.
Klassískar og eftirsóttar mokkasíur frá Gucci í svörtu leðri með gylltum horsebit málm að framan. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Ótrúlega töff sólgleraugu frá Gucci í svartri umgjörð og gleri, með skemmtilegu GG lógó á hliðunum. Upprunalegur kassi fylgir með.
Skemmtilegar stuttbuxur frá Gucci í bláum lit með hvítri og rauðri línu á hliðunum.
Glæsilegt og vinsælt reversible belti frá Gucci með gylltu GG lógó að faman sem hægt er að snúa við. Einum megin er endurtekna ''GG'' mynstrið en hinum megin er bara svart.
Gucci strigaskór í svörtu supreme mynstri með web (blá & rauð) línu á hliðunum og tígrisdýra skrauti. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Æðisleg og hentug tote taska frá Gucci í supreme mynstrinu með gylltum málm. Eitt opið aðalhólf sem lokast með segli, tvær höldur eru á töskunni, ein lengri og önnur styttri. Upprunalegur rykpoki fylgir með.
Gucci sólgleraugu í svartri umgjörð, með dökku gleri og web (rauð & græn) línunni á hliðunum.
Flott Gucci sólgleraugu í bæði dökk & ljós brúnum lit með gylltum málm. Upprunalegt hulstur fylgir með.
Æðislegt Ophidia Clutch veski frá Gucci með crossbody keðjuól. Hægt er að bera töskuna í höndinni, með því að geyma keðjuna að innanverðu en einnig þvert yfir líkamann. Innvolsið er úr bláu satín efni og með gamaldags opnun (segull). Aðalhólf skiptist í tvennt og í innvolsi er einn smærri vasi.
Æðisleg Mini Top handle taska í GG Supreme Ophidia útgáfu. Taskan er kassalaga með renndu aðalhólfi og einum smærri vasa í innvolsi. Töskuhaldfang að ofanverðu og lengri keðju/leðuról. Upprunalegur rykpoki fylgir.
Æðsilegt Top Handla Flap taska frá Gucci úr vinsælu Marmont línunni. Taskan er í litnum Dusty Pink, stærðinni Small og með gylltum áherslum. aðalhólf er lokað/opnað með smellu undir GG lógó að framanverðu. Í innvolsi eru tveir minni vasar en annar þeirra er renndur. Upprunalegur rykpoki fylgir. Taskan kostaði ný hjá Gucci um 2690 usd.
Flott Ophidia Mini taska í mittistösku útgáfu. Taskan er úr GG Supreme efni með klassísku Web litunum að framanverðu. Aðalhólf er rennt með einum minni vasa í innvolsi en á framhlið töskunnar er einn renndur vasi. Belti töskunnar er í stærð 85. Taskan kostaði ný um 1.150 usd (e. est. retail). Upprunalegur rykpoki fylgir.
Glæsileg, falleg taska frá Gucci í ''GG'' Supreme mynstrinu með svörtu kálfa leðri. Allur málmur á töskunni er gylltur og er hægt að læsa töskunni að framan með lás. Eitt aðalhólf er á töskunni með einu renndu hólfi innan í og kortahólfum. Með töskunni fylgja tveir lyklar að lásnum að framan.
Æðisleg og eftirsótt vintage taska frá Gucci. Úr GG Canvas með brúnum leðuráherslum. Eitt rennt aðalhólf, einn renndur vasi og einn opinn vasi í innvolsi. Málmar eru gulltónaðir en farnir að silfrast.
Falleg Dionysus taska frá Gucci í bleikri Bloom útgáfu, í stærðinni Medium (stærsta). Taskan er í klassísku monogram mynstri með bleikum blómum og skartar taskan stórri silfurlitaðri hestaskífu að framanverðu. Eitt stórt aðalhólf sem er opnað með smellu undir skífunni. aðalhólfið skiptist í tvö jafnstór hólf auk rennds vasa fyrir miðju. Einn smærri opinn vasi er að framanverðu undir bleika rúskinninu (flap). Hægt er að bera töskuna á öxlinni með því að nota ólina tvöfalda eða lengja í henni og nota hana einfalda.
Flott Gucci sólgleraugu í svartri umgjörð með dökku gleri og gylltu GG lógó á hliðunum.