Burberry var stofnað árið 1856 af Thomas Burberry og upprunalega sérhæði sig í hönnun og framleiðslu á yfirhöfnum og útivistarfatnið. Burberry hefur í dag fært sig á hátískumarkaðinn og er heimsþekkt fyrir hönnun sína. Nova Check mynstrið þeirra er mjög einkennandi í mörgum hönnunum og varð fyrst vinsælt í kringum 30. áratuginn á síðustu öld. Fyrir árið 1999 var Burberry þekkt sem Burberrys - áður en "s"ið var látið falla.
Æðisleg síð ullarkápa frá Burberry úr 80% ull og 20% viscose. Á kápunni er belti sem er hægt að binda um mittið. Kápan er hneppt alla leið í háls en tölur eru faldar. Einn vasi í innvolsi, einn á hvorri hlið að utanverðu.
Hliðartaska frá Burberry í svörtu nylon efni með Burberry lógó. Eitt rennt aðalhólf með þremur kortahólfum og einu auka renndu hólfi að framan.
Fallegur Nova Check trefill frá Burberry í gráum, hvítum, svörtum og rauðum lit. 100% lambaull.
Vintage Burberry's rykfrakki í drapplituðum lit með köflóttu mynstri að innan. Tveir hnepptir vasar eru á hliðunum og að innan.
Þessi sígildi og tímalausi, The Kensington rykfrakkinn frá Burberry í mid length útgáfunni og litnum Honey. Kápan/frakkinn er nýr og lítið sem ekkert notaður. Kápan kostar ný hjá Burberry u.þ.b. 360.000 kr.
Lítil og hentug mittistaska frá Burberry í svörtum lit með hvítu lógó. Eitt rennt aðalhólf og eitt auka hólf að framan, upprunalegur rykpoki fylgir.
Vintage Burberry blue label kjóll í brúnu, svörtu, hvítu og appelsínugulu mynstri.
Svört leður TB Burberry mittis taska úr lambaskinni með gylltum áherslum. Taskan opnast með flipa og lokast með segulloka og smellu. Taskan hefur eitt aðalhólf sem inniheldur tvenna flata vasa einn minni fyrir kort og annað aðeins stærri. Á leðrinu er útsaumað TB út um allt eins konar vatterað í leðrið og framan á er gyllt TB málmur.
Flott Unisex Cube mittistaska frá Burberry í dökkbrúnu Check mynstri. Aðalhólf er rennt með einum opnum vasa en að aftan er einnig rennur smáhlutavasi. Ól er stillanleg og með fylgir kassi og rykpoki. Tilvalin gjöf.
Mittisbelti frá Burberry í svörtu patent leðri með hvítu, gráu og svörtu Nova check mynstri. Upprunalegur kassi og rykpoki fylgir með.